Þáttastjórnendur á ferð um Borgarnes

febrúar 14, 2008
Þáttastjórnendur rásar 1 sýna Borgarnesi mikinn áhuga þessa dagana. Útvarpskonan góðkunna Lísa Pálsdóttir var við tökur víða í Borgarnesi í gær fyrir þátt sinn Flakk á rás 1 og Leifur Hauksson verður í Borgarnesi á morgun við upptökur fyrir hinn sívinsæla þátt ,,Samfélagið í nærmynd” á rás 1 og verður þátturinn sendur beint út frá hljóðveri Rúv í Borgarnesi kl. 11.03 í fyrramálið.
Myndin er tekin af vef Ríkisútvarpsins og er hún af þeim Leifi Haukssyni og Margréti Blöndal umsjónarmönnum Samfélagsins í nærmynd.

Share: