
Mikil tímamót urðu í sögu Grunnskólans í Borgarnesi nú í vor við lok skólaárs þegar þrír kennarar létu af störfum vegna aldurs, eftir langan og farsælan starfsferil.
Kristín Valgarðsdóttir deildarstjóri unglingastigs, Ragnhildur Kristín Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri og Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir sérkennari luku glæsilegum ferli í kennslu eftir mörg ár í skólaumhverfinu.
Kristín Valgarðsdóttir hefur starfað við Grunnskólann í Borgarnesi í 18 ár, Ragnhildur Kristín Einarsdóttir í 26 ár og Guðrún Rebekka Kristjánsdóttir í 29 ár. Samanalagt hafa þær varið um 73 árum í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Borgarbyggð vill þakka þessum frábæru kennurum fyrir þeirra framlag til skólastarfsins í gegnum árin og og óskar þeim valfarnaðar í hverju sem þær munu taka sér fyrir hendur.
Ámundi Sigurðsson lætur einnig af störfum en hann hefur starfað sem verkstjóri áhaldahússins síðan árið 2014. Við þökkum Ámunda innilega fyrir vel unnin störf en íbúar hafa eflaust séð Ámunda og hans starfsfólk fegra og betrumbæta umhverfið í sveitafélaginu.
Borgarbyggð óskar Ámunda góðs gengis í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.