Sýning um íslenskt atvinnulíf

júní 18, 2014
Sýning um íslenskt atvinnulíf var nýverið opnuð á Bifröst með pompi og prakt að viðstöddum fjölda gesta. Sýningin fjallar um íslensk fyrirtæki og er innsýn í verðmætasköpun þeirra og og hvernig starfsmenn sjá framtíð þeirra fyrir sér.Á sýningunni eru stór myndræn veggspjöld ásamt myndböndum og ljósmyndasýningu frá fyrirtækjum á öllum sviðum atvinnulífsins. Það er Háskólinn á Bifröst sem á veg og vanda að sýningunni en María Ólafsdóttir er sýningarstjóri og hefur leitt vinnuna ásamt Vilhjálmu Egilssyni rektor. Sýningin verður opin í allt sumar frá 10-18 á Bifröst og er aðgangur ókeypis.
 
 

Share: