Sýning Katrínar vekur athygli

júní 24, 2009
Um 300 manns hafa lagt leið sína í Safnahús Borgarfjarðar á síðustu tveimur vikum til að skoða sýningu Katrínar Jóhannesdóttur sem þar sýnir handverk og hönnun. Katrín er ungur Borgnesingur sem numið hefur í Danmörku og sýnir nú afrakstur námsáranna bæði í handavinnu og hönnun, en hún hannar undir vörmerkinu Katý Design.
Uppstilling Katrínar á vönduðu handverki sínu þykir einstaklega listrænt og fallega upp sett auk þess sem hún hefur minningarlegt gildi því Katrín tileinkar hana ömmu sinni, Hólmfríði Jóhannesdóttur, sem lést þann 6. Janúar sl. Sýningin stendur til 31. júlí og er opin alla virka daga frá 13.00 – 18.00 auk þess sem opið verður einhverja helgidaga þegar Katrín verður sjálf á staðnum og verður það þá auglýst sérstaklega á vef Safnahúss: www.safnahus.is
Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir
 

Share: