Sýningaropnun í Safnahúsi Borgarfjarðar 29. apríl nk.

apríl 28, 2023
Featured image for “Sýningaropnun í Safnahúsi Borgarfjarðar 29. apríl nk.”

Laugardaginn 29. apríl nk. opnar í Safnarhúsi Borgarfjarðar spennandi sýning á verkum listakonunar Sigthoru Odins.

Sýningin heitir Hóflegar játningar – Moderate Confessions og eru verkin unnin að hluta til inn í sýningarrými. Sigthora lýsir verkunum sem broti af mennsku ástandi. Í verkefnum kemur fyrir leikur með nærveru og fjarveru og er gerð tilraun til að ávarpa hversdagslegar upplifanir.

Sýningin stendur yfir í Hallsteinssal frá 29. apríl 2023 – 10. júní 2023.

Allir velkomnir. 


Share: