,,Sýndu hvað í þér býr”

nóvember 18, 2008
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Hvanneyri dagana 26.-27. nóvember í kennslustofu í fjósinu á Hvanneyri. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 báða dagana. Sjá hér auglýsingu um námskeiðið. Það er Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins, sem er opið öllum, er að sjá þátttakendum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is
 
(Fréttatilkynning)
 

Share: