Við leitum eftir framsæknum stjórnanda og sérfræðing til þess að taka þátt í að efla og leiða þjónustu sveitarfélagsins inn í nýja tíma. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamið þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Viðkomandi verður einn af þremur sviðsstjórum sem heyra beint undir sveitarstjóra í skipuriti Borgarbyggðar og stýrir starfsemi sviðsins í samræmi við lög og reglugerðir, stefnumörkun og samþykkir sveitarstjórnar, fjárhagsáætlun og greiðsluáætlanir á hverjum tíma.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs mun gegna lykilhlutverki í að leiða þróun á þjónustu sveitarfélagsins og tryggja vandaða stjórnsýslu. Undir sviðið heyrir meðal annars þjónustuver, málefni skipulags-, byggingar, umhverfis og framkvæmdarmála.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni:
- Daglegur rekstur og stjórn stjórnsýslu- og þjónustusviðs, fjárhagsáætlanir og eftirfylgni þeirra
- Umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins
- Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda um faglega stjórnsýslu
- Forysta í mótun og þróun á þjónustu sveitarfélagsins þvert á svið
- Stefnumótun í þjónustuveitingu Borgarbyggðar, ásamt þjónustuþróun og innleiðingu notendamiðaðrar hönnunar
- Þróun og efling stafrænna þjónustuleiða
- Framfylgir ákvörðunum byggðaráðs og sveitarstjórnar á því sviði sem starfið tekur til
- Þátttaka í stjórnun, stefnumótun og umbótastarfi
- Útbýr skýrslu fyrir byggðaráð eftir ákvörðun sveitarstjóra.
- Þátttaka í stefnumótunarvinnu og vinnuhópum á vegum sveitarfélagsins í samráði við sveitarstjóra.
- Ábyrgð á undirbúningi funda byggðaráðs og sveitarstjórnar, ritun fundargerða og frágang afgreiðslu mála í samráði við sveitarstjóra.
- Staðgengill sveitarstjóra.
- Önnur þau verkefni sem sveitarstjóri felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun í lögfræði, verkfræði, opinberri stjórnsýslu, MPM í verkefnastjórnun eða sambærilegum greinum ásamt framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
- Þjónustulund og reynsla af þjónustuþróun og notendamiðaðri þjónustu.
- Reynsla og þekking á verkefnastjórnun.
- Reynsla og þekking af stjórnun og stjórnunarhæfileikar.
- Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu, sveitarstjórnarlögum og öðrum lögum sem undir sviðið heyra.
- Frumkvæði í starfi og skipulagshæfni.
- Sýna skipulögð, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð.
- Einstök samskiptahæfni sem miðar að því að stýra hóp starfsmanna og teymisvinnu.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslensku kunnátta og færni í framsetningu og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 23. september n.k.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is og Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjori@borgarbyggd.is.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is – sjá nánar hér.