Sveitarstjórnarkosningarnar úrskurðaðar ógildar

ágúst 6, 2002
Samkvæmt úrskurði félagsmálaráðuneytisins eru sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fóru í Borgarbyggð 25. maí s.l. ógildar. Kosningarnar skulu því fara fram að nýju svo fljótt sem auðið er.
 
Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur ekki ákveðið hvenær kosningarnar skulu fara fram en ákvörðun um það verður tekin nú í ágústmánuði.
 

Share: