Starfsfólk óskast við sundlaugina:
- í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst.
- á Kleppjárnsreykjum frá 2. júní til 19. ágúst.
- á Varmalandi frá 2. júní til 19. ágúst.
Helstu verkefni:
- Öryggisgæsla.
- Afgreiðslustörf.
- Aðstoð við viðskiptavini.
- Þrif.
Hæfniskröfur:
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Standast hæfnispróf sundstaða.
- Með góða þjónustulund.
Vinnufyrirkomulag:
- 100% starf sem unnið er í vaktavinnu. Unnið er þriðja hvora helgi.
- Kleppjárnsreykir: 100% starf sem unnið er í fimm daga, frí í tvo daga.
- Varmaland: 100% starf sem unnið er í fimm daga, frí í tvo daga.
Umsóknafrestur er til 5. mars 2018.
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Jóhannesdóttir forstöðumaður íþróttamannvirkja Borgarbyggðar, netfang: ingunn28@borgarbyggd.is