Sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni í Borgarbyggð

maí 3, 2021
Featured image for “Sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni í Borgarbyggð”

Borgarbyggð mun bjóða 17 ára ungmennum (fædd 2004) sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu starf í sumar. Störfin felast í fegrun umhverfis; gróðursetningu, gróðurumhirðu og fjölbreyttum verklegum framkvæmdum.

Hæfni:

  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi.

Nánar um störfin:

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk. Ráðningartími eru að tveimur mánuðum innan tímabilsins 1. júní-31. ágúst 2021. Sótt er um störfin í þjónustugátt Borgarbyggðar undir hnappnum; umsókn um atvinnu í vinnuskólanum.

Skilyrði er að umsækjendur hafi búsetu í sveitarfélaginu og verði 17 ára á árinu. Við hvetjum alla sem falla undir þessi skilyrði, óháð kyni og uppruna að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Soffía Dagbjört Jónsdóttir gæða- og mannauðsstjóri á netfanginu soffia@borgarbyggd.is


Share: