Sumar- og afleysingarstörf

apríl 4, 2007
Laus eru til umsóknar sumar- og afleysingastörf hjá Borgarbyggð sumarið 2007. Annars vegar er um að ræða sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi, Íþróttamiðstöðinni Varmalandi og Íþróttamiðstöðinni Kleppjárnsreykjum. Hins vegar er auglýst eftir flokksstjórum við vinnuskóla Borgarbyggðar.
1. Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi, Íþróttamiðstöðinni Varmalandi og Íþróttamiðstöðinni Kleppjárnsreykjum
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Starfið er vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inni, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl.
Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilnings á íþrótta- og æskulýðsstarfi. Laun samkvæmt kjarasamningum launarnefndar sveitafélaga.
Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða. Vinnustaðurinn er reyklaus.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhúss Borgarbyggðar Borgarbraut 14.
Nánari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Indriði Jósafatsson, á skrifstofu eða í síma 433-7100.
Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið indridi@borgarbyggd.is þar sem fram kemur nafn, kennitala, menntun, meðmælendur og fyrri störf umsækjanda.
Share: