Sumarlesturinn að hefjast

júní 7, 2021
Featured image for “Sumarlesturinn að hefjast”

Héraðsbókasafnið efnir að venju til lestrarátaks fyrir börn í sumar á tímabilinu 10. júní – 10. ágúst.

Öll börn á aldrinum 6-12 ára geta skráð sig í sumarlesturinn og tekið bækur að eigin vali til lestrar sér að kostnaðarlausu. Sérstakir happamiðar fara í pott fyrir hverja lesna bók en auk þess fá allir þátttakendur viðurkenningu í lok sumars og verðlaunað verður líka fyrir ákveðinn fjölda lesinna bóka.

Markmið verkefnisins er sem fyrr að viðhalda lestrarfærninni sem börnin öðlast um veturinn en um leið er lögð áhersla á að börnin lesi það sem þau sjálf langar til, hvort sem um er að ræða bók á sérstöku áhugasviði eða góða sögubók. Öll börn geta gerst lánþegar. Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin. Opið verður á bókasafninu alla virka daga í sumar frá 13 -18.

Sumarið er góður tími fyrir bóklestur, sama hvernig viðrar!


Share: