Sumarfjör 2016

maí 17, 2016
Featured image for “Sumarfjör 2016”

Starfsstöðvar: Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreykir og Varmaland

Kæru foreldrar/forráðamenn barna í 1.-4. bekk í Borgarbyggð.

Nú er komið að skráningu fyrir sumarnámskeið í börn í 1.-4. bekk í Borgarbyggð.

Fyrirkomulagið er þannig að hver vika er þematengd svo mismunandi dagskrá er fyrir hverja viku í sumarfjörinu. Með þessu blaði fylgir dagskrá frá hverri starfsstöð, mikilvægt er að muna að ykkar barn getur mætt í sumarfjörið hvar sem er, það er ekki bundið við skóla eða heimili.

Dagurinn hefst klukkan 09:00 og lýkur klukkan 16:00.

Hægt er að kaupa hálfan dag frá 09-12 eða frá 13-16 á 4000 krónur fyrir vikuna og svo heilan dag sem er frá 09-16 á 8000 krónur fyrir vikuna. Systkinaafsláttur er á milli barna í sumarfjörinu. Krakkarnir mæta með nesti fyrir allan daginn en á föstudögum munum við ljúka hverri viku með sumarhátíð en þá verða grillaðar pylsur.

Í þessari dagskrá sem hér fylgir sjáið þið upplýsingar um það sem verður gert í hverri viku, þegar nær dregur mun ég senda ykkur ítarlegri dagskrá með hvað verður gert á hverjum degi, en þetta er sett fram með fyrirvara um breytingar. Einnig mun þar koma fram staðsetning námskeiðs, semsagt hvert skal koma með börnin og sækja þau í lok dags.

Ef ekki næst þáttaka þá mun vikan falla niður en það kemur í ljós í lok mai hvernig það fer því ekki er hægt að skrá sig á námskeið eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Við vinnum í góðu samstarfi með íþróttahúsum, sundlaugum, grunnskólum, safnahúsið, íþróttafélögum og er það markmið allra að búa til öflugt sumarstarf í Borgarbyggð.

Flottur starfsmannahópur mun koma að þessu verkefni í sumar,það eru Hildur Hallkelsdóttir, Jóhannes Magnússon, Jóhanna María Þorvaldsdóttir og Kristín Jónsdóttir.

Skipulögð sumarnámskeið munu einnig vera fyrir 5-7 bekk en dagskrá fyrir það mun ekki koma fyrr en í lok mai.

Í ágúst stendur 2010 börnum til boða að koma og vera með okkur í sumarfjörinu, svo ef þið eigið börn sem eru að fara að byrja í grunnskóla þá eru þau velkomin til okkar í ágúst. Þið fyllið út þessa sömu pappíra og skilið inn fyrir 23.mai.

Vinsamlegast fyllið út umsóknareyðublaðið og sendið á netfangið siggadora@umsb.is, einnig er hægt að skila inn umsókninni í Ráðhús Borgarbyggðar eða skrifstofu UMSB. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 23.mai.

Kær kveðja
Sigga Dóra
Tómstundafulltúi
S: 8698646


Share: