Borgarbyggð minnir á að félagsstarf aldraða að Borgarbraut 65a er opið í allt sumar. Eftir inniveru og einangrun vegna Covid-19 faraldursins er líklega kærkomið fyrir marga að geta tekið þátt í félagsstarfi í góðum félagsskap.
Það verður margt um að vera næstu daga og vikur, meðal annars verða tónlistaratriði í hádeginu alla miðvikudaga. Gaman er að segja frá því að söngkonan Diddú ætlar að koma og flytja vel valin lög á morgun, miðvikudaginn 22. júlí.
Vakin er athygli á því að sá möguleiki er fyrir hendi að fá akstur í félagsstarfið ef einstaklingar eiga erfitt með að komast. Best er að hafa samband við ferðaþjónustuna í síma 862-6164 og óska eftir akstri.
Dagskrá dagana 20.-30. júlí er sem hér segir:
Mánudagur 20.07
- 10:30 Boccia
- 13:30 Sundferð
Þriðjudagur 21.07
- 10:30 Létt ganga
- 11:00 Stólaleikfimi (Guðrún Karítas stýrir)
- 14:30 Geirabakarí
Miðvikudagur 22.07
- 10:30 Boccia
- 13:00 Hádegistónleikar. Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) syngur nokkur lög
Fimmtudagur 23.07
- 10:30 Létt ganga
- 11:00 Stólaleikfimi (Guðrún Karítas stýrir)
- 13:00 Spil
Föstudagur 24.07
- 10:30 Létt ganga
Mánudagur 27.07
- 10:30 Boccia
- 13:30 Sundferð
Þriðjudagur 28.07
- 10:30 Létt ganga
- 11:00 Stólaleikfimi (Guðrún Karítas stýrir)
- 13:30 Sveitaferð, Ullarselið Hvanneyri-skráning nauðsynleg í s. 8411141
Miðvikudagur 29.07
- 10:30 Boccia
- 13:00 Hádegistónleikar. Theodóra Þorsteinsdóttir með söngstund
- 13:30 Bingó/Spilabingó
Fimmtudagur 30.07
- 10:30 Létt ganga
- 11:00 Stólaleikfimi (Guðrún Karítas stýrir)