Borgarbyggð minnir á að félagsstarf aldraða að Borgarbraut 65a er opið í allt sumar. Eftir inniveru og einangrun vegna Covid-19 faraldursins er líklega kærkomið fyrir marga að geta tekið þátt í félagsstarfi í góðum félagsskap.
Í sumar verður liðsauki í félagsstarfi aldraðra að Borgarbraut 65a sem gerir það að verkum að hægt verður að bjóða upp á aukna afþreyingu.
Dagskrá vikuna 6. – 10. júlí 2020 er sem hér segir:
Mánudagur 06.07.20
- 10:30 Boccia
Þriðjudagur 07.07.20
- 10:30 Létt ganga
- 14:00 Spil
Miðvikudagur 08.07.20
- 10:30 Boccia
- 14:00 Ferð í Garðplöntustöðina Gleym-mér-ei
Fimmtudagur 09.07.20
- 10:30 Létt ganga
- 14:30 Ferð í Geirabakarí
Föstudagur 10.07.20
- 10:30 Létt ganga