Styrkveitingar til menningarverkefna í Borgarbyggð

apríl 20, 2021
Featured image for “Styrkveitingar til menningarverkefna í Borgarbyggð”

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd samþykkti á fundi sínum 6. maí sl. að veita styrki til menningarverkefna í Borgarbyggð  árið 2021.

Markmið styrkveitinga er að styðja við fjölbreytta menningarstarfsemi í  sveitarfélaginu og stuðla að jákvæðri þróun í menningarmálum.

Umsóknir verða teknar fyrir þrisvar í ár; maí, september og desember. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi viku fyrir fund nefndarinnar sem er 4. maí nk . Til að sækja um styrk fyrir úthlutun í maí þurfa umsóknir að hafa borist fyrir 27. apríl nk.

Umsóknum skal skilað rafrænt í þjónustugátinni á þar til gerðu eyðublaði sem heitir eftirfarandi; styrkveitingar til menningarverkefna.

Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér reglur um styrkveitingar til menningarverkefna, sjá hér.


Share: