Hér með auglýsir tómstundanefnd Borgarbyggðar eftir umsóknum vegna úthlutunar á peningalegum styrkjum til íþrótta- tómstunda- og æskulýðsstarfsemi í Borgarbyggð fyrir árið 2002.
Umsóknir þurfa að hafa borist til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Borgarbraut 11  fyrir mánudaginn  25.  febrúar  n.k.
Um styrki geta sótt félög og aðilar í Borgarbyggð sem sinna íþrótta,-  tómstunda- og æskulýðsstarfi eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi