Styrkir úr Menningarsjóði Borgarbyggðar

janúar 22, 2002

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð.

Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör síðasta árs, eða starfsárs og áætlun um nýtingu styrksins ásamt greinargerð. Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins.

Umsóknir skulu berast forstöðumanni Fræðslu- og menningarsviðs Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi fyrir 20. febrúar n.k.

Borgarnesi, 22. janúar 2002,

Stjórn Menningarsjóðs
Borgarbyggðar.


Share: