Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka 2016

febrúar 20, 2016
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
 
Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2016. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2016 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra.
 
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is/stjornsysla/umsoknir
 
 
 

Share: