Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka 2015

febrúar 22, 2015
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2015. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2015 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálastjóra.
Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar.
 

Share: