Styrkir til greiðslu fasteignaskatts

júlí 7, 2007
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti nýverið reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka (skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995). Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2007. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi en einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað hér á vefnum. Reglur um styrkina er að finna hér. Umsóknarfrestur er til 15. september 2007.
 

Share: