Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka  

febrúar 13, 2024
Featured image for “Styrkir til greiðslu fasteignaskatts  til félaga og félagasamtaka   ”

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2024.  Umsóknarfrestur er til 1. maí 2024 og skal umsóknum skilað í gegnum heimasíðu Borgarbyggðar eða til fjármálastjóra.

Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is


Share: