Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2021. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2021 og skal umsóknum skilað í gegnum heimasíðu Borgarbyggðar eða til sviðsstjóra fjármálasviðs.
Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is