Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2020 og skal umsóknum skilað til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar. Einnig er hægt að sækja um rafrænt í gegnum þjónustugáttina inn á borgarbyggd.is