Stuðningur v. náttúruhamfara á Grænlandi

júní 23, 2017
Featured image for “Stuðningur v. náttúruhamfara á Grænlandi”

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 22. Júní sl. að styrkja söfnunina „Vinátta í verki“ sem hrundið var af stað vegna náttúruhamfaranna á vesturströnd Grænlands sem lögðu þorpið Nuugaatsiaq í rúst, um kr. 100.000.- Það er eðlilegt að leggja nágrönnum okkar í vestri stuðning þegar þeir þurfa á að halda eins og þeir gerðu á sínum tíma þegar vestfirsk þorp urðu fyrir skelfilegum áföllum. Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmer Hjálparstarfs kirkjunnar: 0334-26-056200, Kennitala 450670-0499


Share: