Vegna vinnu Landsnets á Vatnshömrum þarf að taka rafmagn af dreifikerfi RARIK norðan Skarðsheiðar aðfaranótt 7. júní frá miðnætti til kl. 07:00
Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með talið alla þéttbýlisstaði, s.s. Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri.
Búið er að setja tilkynningu inn á heimasíðu RARIK um fyrirhugað straumleysi.
Þá hefur straumleysið einnig verið auglýst í Skessuhorninu, og með SMS-skilaboðum til notenda sem hafa skráð GSM-símanúmer hjá okkur.
Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af þessu stafa. Bilanasími 528 9390