Stóri Plokkdagurinn verður haldinn 30. apríl næstkomandi og eru íbúar í Borgarbyggð hvattir til að taka þátt og hreinsa til í sínu nærumhverfi.
Opið er á gámastöðinni í Borgarnesi milli klukkan 14:00 og 18:00 sunnudaga til föstudags, og milli klukkan 10:00 og 14:00 á laugardögum.
Vakin er athygli á að lokað er 1. maí.