Stofnanir lokaðar 26.mars vegna óveðurs.

mars 25, 2026
Featured image for “Stofnanir lokaðar 26.mars vegna óveðurs.”

Á morgun, fimmtudaginn 26. mars verða allar skólastofnanir Borgarbyggðar lokaðar, þar á meðal Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Borgarfjarðar,  Listaskólinn, Hnoðraból, Hraunborg, Andabær, Klettaborg og Ugluklettur.

Klettaborg og Ugluklettur munu meta stöðuna um hádegi og opna kl.13 ef veður og færð leyfa.

Aldan verður lokuð, en Búsetan verður opin, rétt er að benda á að líklega verði skert þjónusta.

Íþróttamiðstöðvarnar verða lokaðar til klukkan 15:00.

Íbúar eru hvattir til að fara varlega og halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir.


Share: