Starf við afleysingar

september 23, 2015
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar tímabundið 50-100% starf við afleysingar við afgreiðslu- og innheimtustörf í ráðhúsi Borgarbyggðar.
 
Verkefni og ábyrgðarsvið
Móttaka og símsvörun.
Almenn skrifstofustörf.
Bókhalds- og innheimtustörf
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
Stúdentspróf.
Reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking á Navision.
Góð tölvukunnátta.
Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Til að byrja með er aðallega um starf að ræða við afleysingu í afgreiðslu en eftir áramót tekur viðkomandi við innheimtustörfum vegna fæðingarorlofs.
 
Upplýsingar veitir Aldís Arna Tryggvadóttir í síma 433 7100.
 
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.
 
Staðan er laus frá og með 1. nóvember nk.
Umsóknarfrestur er til og með 12. október. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið aldisarna@borgarbyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf (1/2 – 1 bls.) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
 

Share: