Starfsmenn Ráðhúss hjóla í vinnuna

maí 10, 2007
Nokkrir starfamenn í Ráðhúsi Borgarbyggðar taka nú þátt í heilsu- og hvatningarátaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Átakið stendur yfir í þrjár vikur, frá 2. – 22. maí 2007. Starfsmenn Ráðhússins hvetja sveitunga sína til að ganga og hjóla sem allra mest. Fylgjast má með átaksverkefninu á vef ÍSÍ.
 

Share: