Karlmaður óskast til starfa við sundlaugina á Varmalandi frá 17. ágúst 2020. Um er að ræða 60% starf við Íþróttamiðstöðina á Varmalandi. Vinnutími er samkvæmt núgildandi vaktaplani. Ef ekki fæst karlmaður í starfið verður ráðin kona.
Helstu verkefni
- Öryggisgæsla við sundlaug
- Afgreiðslustörf
- Aðstoð við viðskiptavini
- Þrif
Hæfniskröfur
- Hafa náð 18 ára aldri
- Standast hæfnispróf sundstaða
- Þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2020
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn Jóhannesdóttir ingunn.johannesdottir@borgarbyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið ingunn.johannesdottir@borgarbyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.