Starfsemi Öldunnar

september 16, 2016
Featured image for “Starfsemi Öldunnar”

Starfsemi Öldunnar færðist í nýtt og bjart húsnæði að Brákarbraut 25. Þar er vinnustofa til húsa og dósamóttaka. Á vinnustofunni starfa að meðaltali tíu starfsmenn og tveir leiðbeinendur ásamt forstöðumanni. Í dósamóttökunni starfa sjö starfsmenn og einn verkstjóri.

Framkvæmdir við að innrétta húsnæðið eru komnar langt á veg og er ánægja meðal starfsmanna með nýju aðstöðuna.

Nú geta starfsmenn Öldunnar borðað hádegisverð á vinnustaðnum og fá þeir sendan matarbakka frá Brákarhlíð til að byrja með. Hugmyndin er að starfsmennirnir geti eldað á staðnum þegar framkvæmdum lýkur.

Helstu  verkefni vinnustofunnar nú í haust eru gerð fjölnota poka meðal annars fyrir veitingarhús og verslun Gló og Heilsuhúsið í Reykjavík. Vinnustofan sníðir til tuskur fyrir HB Granda og einnig framleiða starfsmenn kerti sem seld eru í Ljómalind. Auk þess vinna starfsmenn við það að líma merkingar á lok utan um jarðaber fyrir Sólbyrgi.

Björg Ólafsdóttir á Hamarendum gaf vinnustofu Öldunnar vefstól sem mun nýtast vel til þess að vefa mottur og dúka. Hefur vefstóllinn vakið mikla lukku meðal starfsmanna og aukið fjölbreytni verkefna.

Forstöðumaður Öldunnar er Guðrún Kristinsdóttir þroskaþjálfi.

Opnunartími dósamóttöku er alla virka daga frá kl. 8:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00.

Þar er hægt að fá skilagjald fyrir dósir og flöskur og kaupa ruslapoka.

Opnunartími vinnustofu er alla virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.

Almenningi gefst kostur á að versla meðal annars fjölnotapoka, kerti, tuskur og skart.

Sími vinnustofunnar er 433 7440 og 433 7441 í dósamóttökunni.

Aldan er á facebook en þar er hægt að fylgjast með starfi vinnustofunnar.

aldan

 


Share: