Starf innheimtufulltrúa laust til umsóknar

september 27, 2007
Laust er til umsóknar starf innheimtufulltrúa á skrifstofu Borgarbyggðar.
Um er að ræða starf við gerð og útsendingu reikninga, innheimtur og önnur skrifstofustörf.
Starfsaðstaða innheimtufulltrúa er á skrifstofu Borgarbyggðar í Reykholti.
Æskilegt er að umsækjendur hafi framhaldsskólamenntun, reynslu af skrifstofustörfum og góða þjónustulund.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Laun skv. kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri síma 433-7100 eða netfang eirikur@borgarbyggd.is
Umsóknir skulu berast skrifstofustjóra á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, Borgarnesi fyrir 12. október n.k.
Skrifstofustjóri.
 
 

Share: