Borgarbyggð auglýsir starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs laust til umsóknar. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í lifandi umhverfi. Viðkomandi verður einn af þremur sviðsstjórum sem heyra beint undir sveitarstjóra í skipuriti Borgarbyggðar.
Undir fjölskyldusvið heyra félagsþjónusta, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, æskulýðsmál, forvarnarmál, leik-, grunn- og tónlistarskóli og íþrótta- og tómstundamál. Markmið sviðsins er meðal annars að stuðla að barnvænu, heilsueflandi og valdeflandi samfélagi.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs stýrir starfsemi sviðsins í samræmi við lög og reglugerðir, stefnumörkun og samþykktir sveitarstjórnar, fjárhagsáætlun og greiðsluáætlanir á hverjum tíma.
Starfssvið
- Umsjón með gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana, starfs- og framkvæmdaáætlana sem undir sviðið heyra
- Framkvæmd verkefna í samræmi við samþykktir sveitarstjórnar hverju sinni
- Undirbúningur og framkvæmd stefnumótunar og áætlanagerðar
- Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem gilda hverju sinni og heyra undir sviðið
- Samskipti við opinberar stofnanir, íbúa sveitarfélagsins og aðra þá sem tengjast verkefnum sviðsins
- Önnur verkefni sem undir sviðið heyra hverju sinni
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi er skilyrði
- Þekking á lögum og reglugerðum í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið er skilyrði
- Haldbær reynsla af stjórnun og opinberri stjórnsýslu í málaflokkum sviðsins
- Reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og áætlanagerð
- Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 14. júlí n.k.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is