Spennandi störf í leik-, grunn- og menntaskóla

maí 17, 2007
Borgarbyggð hefur auglýst eftir fólki í ýmis spennandi og áhugaverð störf í leikskólum, grunnskólum og nýjum menntaskóla. Ugluklettur, nýr leikskóli í Borgarnesi, auglýsir eftir deildastjórum, leikskólakennurum og leikskólasérkennara. Leikskólinn Hnoðraból í Reykholti auglýsir eftir leikskólakennara og Grunnskólinn í Borgarnesi eftir kennurum (sérkennara og textílmenntakennara). Þá er auglýst eftir sérkennsluráðgjafa til starfa hjá sérfræðiþjónustu skólanna og loks nýju starfi námsráðgjafa sem skiptist á milli þriggja grunnskóla og nýs menntaskóla.
 
 
Myndin er af leikskólaskvísum á Bifröst. Ljósmyndari: Þorgerður Gunnarsdóttir.

Share: