Spegill samfélags – sýningaropnun 14. janúar
Laugardaginn 14. janúar verður opnuð ný ljósmyndasýning í Safnahúsi og hefur hún hlotið heitið Spegill samfélags. Markar opnun hennar fyrsta viðburð á vegum sveitarfélagsins í tilefni af afmælisári Borgarness (1867-2017).
Aðdragandi sýningarinnar er nokkuð langur, hann hófst í ársbyrjun 2016 þegar auglýst var ljósmyndasamkeppni og kallað eftir myndum frá almenningi sem teknar skyldu það ár. Myndefnið skyldi vera Borgarnes í tilefni af væntanlegu 150 afmæli bæjarins (1867-2017). Margir sendu inn myndir og á sýningunni má sjá 26 þeirra. Mun fleiri myndir bárust í keppnina og færir Safnahús ljósmyndurunum öllum bestu þakkir fyrir innsent efni. Allar myndirnar verða skráðar í safnkost Héraðsskjalasafns með góðfúslegu leyfi höfunda enda felst í slíkum myndum mikið heimildagildi um mannlíf og umhverfi Borgarness á árinu 2016.
Í dómnefnd um val á þremur bestu myndunum og 26 sýningarmyndum voru þau Þorkell Þorkelsson, Heiður Hörn Hjartardóttir og Kristján Finnur Kristjánsson. Beco ehf gefur fyrstu verðlaun.
Ljósmyndarar sýningarmynda eru þessir:
Ágúst Ágústsson Borgarnesi
Björn Bjarki Þorsteinsson Borgarnesi
Halldór Óli Gunnarsson Borgarnesi
Jóhann Snæbjörn Traustason Borgarnesi
Michelle Bird Borgarnesi
Maria del Carmen Ramirez Espinosa Borgarnesi
Ragnar Gunnarsson Borgarnesi
Sigrún Haraldsdóttir Ytri-Njarðvík
Sonja L. Estrajher Eyglóardóttir Borgarnesi
Sunna Gautadóttir Borgarnesi
Vernharður Atli Hjaltested Akranesi
Theodóra Þorsteinsdóttir Borgarnesi
Hönnuður sýningarinnar er Heiður Hörn Hjartardóttir, smíði annaðist Hannes Heiðarsson og prentun myndanna fór fram hjá Tækniborg. Framköllunarþjónustan annaðist veggspjaldaprentun og Guðrún Jónsdóttir sýningarstjórn.
Á opnunardaginn verður sýningin opin 13.00 – 16.00 og eftir það alla virka daga 13.00 – 18.00 eða á öðrum tímum eftir samkomulagi. Á opnuninni verða veitt verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar að mati dómnefndar.
Ljósmynd: Borgarnes í árdaga, gamalt póstkort. Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar.