Vegna veðurs hefur sorphirða gengið hægar undanfarna daga en áætlað var.
Þá var sorpurðunarstaðum í Fíflholtum lokað í gær og verður lokað þar fram á föstudag. Ekki náðist að ljúka hirðingu á grænu tunnunni í dreifbýli skv. sorphirðudagatali.
Frekari hirðing frestast því þar til veður hefur gengið niður.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.