Skrifstofuhúsnæði til leigu

nóvember 2, 2010
Til leigu er gott skrifstofuhúsnæði í Litla-Hvammi í Reykholti, Borgarfirði. Um er að ræða tvö herbergi sem henta vel sem skrifstofur en geta einnig vel nýst fyrir aðra starfsemi. Hvort herbergi um sig eru 11 – 12 fermetrar að stærð. Möguleiki er að leigja stærri hluta af húsinu ef áhugi er fyrir hendi.
Í húsinu er hluti af skrifstofurekstri Borgarbyggðar og kemur til greina að samnýta tæki s.s. ljósritunarvél. Þar er góð kaffistofa sem er sameiginleg með annarri starfsemi og nýtist einnig sem fundaraðstaða.
Þeir sem áhuga hafa á að leigja húsnæðið eru beðnir að hafa samband við undirritaðan sem gefur nánari upplýsingar.
Skrifstofustjóri Borgarbyggðar
Sími 433-7100
 
 

Share: