Ágætu íbúar Borgarbyggðar
Vegna sumarleyfa starfsfólks verður skrifstofa umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar lokuð föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi, þann 3. ágúst. Við afsökum óþægindin sem þetta kann að valda.
Þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi, þann 7. ágúst, taka gildi nýir viðtalstímar starfsmanna sviðsins. Markmiðið með viðtalstímunum er að bæta þjónustu við íbúa og hraða úrvinnslu erinda.