Skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi

október 16, 2013
Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi hefur verið framlengdur til 24. október. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við aðra starfsmenn skólans. Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda.
 
 

Share: