Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi

júní 1, 2017
Featured image for “Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi”

Skólaslit eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1. – 9. bekkja og hins vegar 10. bekkjar.

  1. – 9. bekkur

Nemendur mæta við skólann kl. 9.00 föstudaginn 2. júní við skólann.

Nemendur 1. bekkjar verður í leikjum í Skallagrímsgarði. Þau fara og fá grillaða pylsu í garðinum þegar það hentar inn í dagskrá þeirra. Foreldrar þeirra eru velkomnir að vera með.

  1. – 9. bekkur fer í ratleik. Hann hefst við skólann þar sem skipt er í hópa. Á einni stöðinni í leiknum verður boðið upp á grillaða pylsu. Þegar allir hópar hafa lokið leiknum, er safnast saman í íþróttahúsi þar sem lokaatriði ratleiksins fer fram, söngatriði og afhending einkunna. Dagskráin í íþróttahúsi hefst um kl. 10.40 ætti að vera lokið kl. 11:40.

Skólabíll innanbæjar fer úr Sandvík kl. 8:45 og til baka um kl. 11.40 eða að lokinni dagskrá. Eins verður skólaakstur úr dreifbýli þannig að passi við tímasetningar.

Um er að ræða tæplega tveggja klukkustunda útiveru, þannig að mikilvægt er að koma klædd/ur eftir veðri og eins og veðurspá er á þeim tímapunkti sem þetta er skrifað, verður rigning á föstudagsmorgun.

Foreldrar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir.

  1. bekkur.

Athöfnin fer fram Í Hjálmakletti og hefst kl. 18.00. Þar mæta nemendur og aðstandendur þeirra auk starfsfólks skólans.

 


Share: