Skólasetning grunnskóla Borgarbyggðar

ágúst 20, 2018
Featured image for “Skólasetning grunnskóla Borgarbyggðar”

Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur 22. ágúst 2018 í hverri deild fyrir sig sem hér segir.

  • Hvanneyri kl 10:00,
  • Kleppjárnsreykjum kl 12:00,
  • Varmalandi kl 14:00.

Eftir skólasetningu verður kynning á námsefni vetrarins inn í stofu hjá umsjónakennurum.

Grunnskólinn í Borgarnesi verður settur í Borgarneskirkju miðvikudaginn 22. ágúst. Nemendur á yngsta stigi (1. – 4. bekkur) mæta kl. 10.00, nemendur á miðstigi (5. – 7. bekkur) kl. 10.40 og nemendur unglingastigs (8. – 10. bekkur) kl. 11.20. Að lokinni skólasetningu fara nemendur í skólann ásamt umsjónarkennurum til stuttrar samveru í bekkjarstofu og fá þá afhent gögn.

Skólabíll innanbæjar fer þrjár ferðir að skóla, kl. 9.45, 10.15 og 11.15 og eina ferð heim kl. 12:00 eða eftir setningu hjá unglingastigi.

Skólabílar af Mýrum koma að skóla kl. 10.00 og fara heim 12.00 eða að lokinni setningu hjá unglingastigi.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst.


Share: