Skipulagsauglýsing – Hesthúsahverfið í Hamarslandi

nóvember 28, 2007

Auglýsing um deiliskipulagsbreytingu hesthúsahverfis í Hamarslandi, Borgarbyggð.

Í samræmi við 26. grein skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn
Borgarbyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:

Um er að ræða breytingu á áður auglýstu deiliskipulagi. Á auglýsingartíma komu
fram athugasemdir við tillöguna. Ósk um stækkun lóðar nr. 1 við Selás og ósk um
reiðleið milli húsa 11 og 13 við Selás og að auki var lóðinni Selás 15 bætt við frá áður
auglýstri tillögu.
Lagfærð breytingartillaga verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14
Borgarnesi frá 28. nóvember til 27. desember. Frestur til að skila inn skriflegum
athugasemdum til framkvæmdasviðs Borgarbyggðar rennur út 10. janúar 2008.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna telst henni samþykkur.
Mynd: Björg Gunnarsdóttir
 

Share: