Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð – 2015-11-25

nóvember 25, 2015
Húsafell, Stuttárbotnar – nýtt deiliskipulag, lýsing


Sveitarstjórn samþykkti 12. nóvember 2015 að auglýsa lýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir Stuttárbotna í Húsafelli. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 30. október 2015 og felur meðal annars í sér skipulag fyrir 162 frístundalóðir og útivistarsvæði.

Lýsingin verður auglýst frá 25. nóvember til og með 11. desember 2015, skv. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila í siðasta lagi 11. desember 2015.
 
Hér má sjá uppdrátt og greinargerð skipulagstillögunnar.
 
Húsafell, verslunar- og þjónustusvæði – breytt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 12. nóvember 2015 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Húsafell, verslunar- og þjónustusvæði. Breytingin hefur í för með sér breytt byggingarmagn og breytingu á bílastæði á svæðinu samkvæmt uppdrætti með greinargerð dags. 30. október 2015.

Deiliskipulagið verður auglýst frá 25. nóvember til og með 5. janúar 2016 skv. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila í síðasta lagi 5. janúar 2016.
 
Tillöguna má sjá hér.
 
Kynningarfundur verður fimmtudaginn 10. desember í Ráðhúsi Borgarbyggðar kl. 19.00 til 20.00
Nálgast má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá og með 25. nóvember 2015.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila annað hvort í Ráðhúsi Borgarbyggðar eða á netfangið lulu@borgarbyggd.is og skulu þær vera skriflega.
 

Share: