Skipulagsauglýsing 2007-02-19

febrúar 19, 2007
Deiliskipulagsbreyting á frístundasvæði Skógarbyggðar í landi Bjarnastaða, Borgarbyggð. Sjá má breytingatillöguna með því að smella hér.
Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við breytingu á ofangreindu skipulagi.
Breyting felst í því að stærðarmörkum frístundahúsa í byggingarskilmálum er breytt úr 100m2 í 150m2.
Deiliskipulag verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 23.02.2007 til 23.03.2007 frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 10.04.2007.
Athugasemdir við breytingar á skipulaginu skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst samþykkur tillögunni.
Borgarnesi 19.02.2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar.

Share: