Skipulagsauglýsing – 2007-02-14

febrúar 14, 2007
Auglýst er deiliskipulagsbreyting á frístundasvæði Brekkubyggðar í landi Bjarnastaða, Borgarbyggð.
Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við breytingu á ofangreindu skipulagi.
Breyting felst í því að stærðarmörkum frístundahúsa í byggingarskilmálum er breytt úr 120m2 í 150m2.
Deiliskipulag verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 21.02.2007 til 21.03.2007 frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 4.04.2007.
Athugasemdir við breytingar á skipulaginu skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst samþykkur tillögunni.
Borgarnesi 12.02.2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar.

Share: