Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð

maí 30, 2014
Við sveitarstjórnarkosningarnar laugardaginn 31. maí 2014 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
 
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi.
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,00 og lýkur kl. 22,00.
 
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu.
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. 10,00 og lýkur kl. 20,00.
 
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku.
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. Kjörfundur hefst kl. 10,00 og lýkur kl. 20,00.
 
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi.
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð. Kjörfundur hefst kl. 10,00 og lýkur kl. 22,00.
 
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási.
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kjörfundur hefst kl. 10,00 og lýkur kl. 20,00
 
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum.
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals. Kjörfundur hefst kl. 10,00 og lýkur kl. 22,00.
 
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kosningavef Innanríkisráðuneytisins kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar.
 
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7705.
 
Talning atkvæða fer fram í Hjálmakletti þegar öllum kjörstöðum hefur verið lokað.
 
 
 

Share: