Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð

apríl 26, 2013
Við alþingiskosningar laugardaginn 27. apríl 2013
er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,
Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo
Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.
Kjósendur eru hvattir til að hafa persónuskilríki með sér á kjörstað og
athuga í hvaða kjördeild þeir eiga kjósa.
hægt að athuga í hvað kjördeild hver kjósandi á að kjósa.
 
Á kjörstöðunum á Kleppjárnsreykjum og Brúarási standa nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir kaffisölu og einnig verður kaffisala í Þinghamri á vegum Kvenfélags Stafholtstungna.
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur
í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7705.
 

Share: