Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð

september 16, 2021
Featured image for “Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð”

Við Alþingiskosningar laugardaginn 25. september 2021 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi

  • Það kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár
  • Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu

  • Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku

  • Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi

  • Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási

  • Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum

  • Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.

Á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is, geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar.

Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708.

Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar

 


Share: