Skemmtilegt og gefandi starf í Klettaborg

júlí 5, 2018
Featured image for “Skemmtilegt og gefandi starf í Klettaborg”

Skemmtilegt og gefandi starf í Klettaborg

Okkur vantar leikskólakennara sem vill vinna í góðum og traustum leikskóla. Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi.

Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.

 Menntun og færnikröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Færni í mannlegum samskiptum

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru fólk af báðum kynjum hvatt til að sækja um.

Ráðið verður í starfið frá og með 16. ágúst 2018 eða eftir nánara samkomulagi.

Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Eldri umsóknir þarf að endurnýja hjá leikskólastjóra.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2018.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160.

Umsóknir með upplýsingum um menntun, ferilskrá og meðmælum berist til leikskólastjóra á netfangið steinunn@borgarbyggd.is


Share: